Golfklúbburinn Keilir og Heimsferðir héltu í dag opið golfmót á Hvaleyrarvelli þrátt fyrir slæma veðurspá fyrir daginn í dag. Mótsnefnd hafði samband við veðurklúbbinn á Dalvík og kom afdráttarlaust svar um að halda mótið og auðvitað var það gert:) Suðrænir tónar hljómuðu í golfskála Keilis á meðan mótinu stóð og sáu gestir okkar frá Spáni um að halda uppi stemmingu í allan dag.
96 kylfingar tóku slaginn í dag enda glæsileg verðlaun í boði frá Heimsferðum fyrir höggleik og punktakeppni. Einnig voru veitt nándarverðlaun fyrir næst holu á 6 og 10. braut. Henning Darri Þórðarsson ungur kylfingur úr GK átti tilþrif dagsins þegar hann fór holu í höggi á 4. braut. Við óskum honum til hamingju með höggið magnaða.
Jesus fór á kostum í allan dag
Helstu úrslit dagsins urðu þessi:
Höggleikur
1. sæti Helgi Runólfsson GK 69 högg
2-3. sæti Birgir Björn Magnússon GK 73 högg
2-3. sæti Hávarður Gunnarsson GG 73 högg
Punktakeppni
1. sæti Jón Lárus Kjerúlf GK 39 punktar
2. sæti Traust Bragasson GK 37 punktar
3. sæti Hávarður Gunnarsson GG 37 punktar
4. sæti Ragnar Geir Hilmarsson GKG 37 punktar
5. sæti Helgi Runólfsson GK 37 punktar
Nándarverðlaun
6. braut Steinar Páll Ingólfsson GK 1,33 m
10. braut Hjörtur Ingþórsson GR 2,87 m
Golfklúbburinn Keilir þakkar Heimsferðum og keppendum fyrir glæsilegt og skemmtilegt mót sem heppnaðist í alla staði vel. CSA leiðrétting var +2 í dag.
Helgi Runólfsson tekur við verðlaunum fyrir höggleikinn
Antonio að draga úr skorkortum
Veðrið var nú ekki verra en þetta