Sunnudaginn 17. mars var haldið fyrsta púttmótið af fjórum sem verða haldinn í samvinnu við FootJoy. Vegleg verðlaun verða fyrir fyrstu sex sætin og einnig aukaverðlaun fyrir 20. sæti. 50 manns komu í Hraunkot á sunnudaginn og tóku þátt í fyrsta mótinu í blíðskaparveðri. Keppendur púttuðu 2 hringi og taldi betri hringurinn. Mótið byrjaði kl 13:00 og stóð til 18:00 og tókst vel. Úrslit urðu eftirfarandi:
1. sæti Aron Atli Bergmann 23 pútt (12-11)
2. sæti Sigurður Ó Sumarliðasson 26 pútt (13-13)
3. sæti Ragnar Pétur Hannesson 27 pútt (15-12)
4. sæti Atli Már Grétarsson 27 pútt (14-13)
5. sæti Benedikt Árni Harðarsson 27 pútt (12-15)
6. sæti Þór Breki Davíðsson 28 pútt (16-12)
Aukaverðlaun fyrir 20. sæti hlaut svo Jakob Richter.
Vinningshafar geta vitjað vinninga í afgreiðslu Hraunkots. FootJoy og Hraunkot þakka þeim sem tóku þátt kærlega fyrir og við minnum á næsta mót sem verður 23. mars.