Iðkendur og aðstandendur frá GK eru nýkomin heim frá æfingaferð á La Sella á Spáni. Hópurinn lék og æfði golf við mjög góðar aðstæður. Leiknar voru 18-36 holur á dag og auk þess að æfa fram á kvöld.
Þjálfarar og fararstjórar vilja þakka hópnum fyrir eljusemina og allan dugnaðinn og hvað þau voru sér og sínum til mikils sóma.
Þjálfarar og fararstjórar vilja koma á framfæri kæru þakklæti til Einars fararstjóra Heimsferða fyrir alla aðstoð og liðlegheit.