Í dag var haldið á Hvaleyrarvelli árlegt golfmót Hauka og voru 100 Haukamenn út um allan völl að reyna við “Baddaskjöldinn” og “Rauða jakkann.” Veðurguðinn bauð uppá nánast engan vind en lét í staðinn rigna aðeins á Haukafólkið. Í þessu móti er keppt um Rauða Jakkann í punktakeppni og einnig titilinn Öldungameistari Hauka til minningar um Ólaf H.Ólafsson. Baddaskjöldinn hlýtur svo sá Haukamaður sem spilar best í Höggleik. Fjöldi fólks var viðstadd verðlaunaafhendingu sem fór fram í golfskálanum nú í kvöld. Glæsileg verðlaun voru veitt og var dregið úr skorkortum í lokinn. Golfklúbburinn Keilir og Haukar þakka öllum kærlega fyrir stuðninginn og skemmtilegt mót. Fleiri myndir er svo hægt að sjá á Facebook síðu Keilis. http://www.facebook.com/Golfverslun
Glæsileg verðlaun
Hér koma svo helstu úrslit:
Punktakeppni
1. sæti Ólafur Valgeir Guðjónsson 41
2. sæti Kristján Sigurðsson 39
3. sæti Guðmundur Ö.Óskarsson 39
Höggleikur án forgjafar
1. sæti Aron Bjarni Stefánsson 71 högg
Nándarverðlaun
4. braut Rúnar Guðjónsson 2,13 cm
6. braut Hilmar Eiríksson 2,47 cm
10. braut Ólafur Valgeir Guðjónsson 1,20 cm
16. braut Gísli Þór Sigurbergsson 2,60 cm
18. braut Arnar Bjarnasson 4,75 cm (næst holu í 2 höggum)
Ólafur Valgeir tók sig vel út í Rauða Jakkanum
Verðlaunahafar kvöldsins Ólafur Valgeir og Aron Bjarni
Og fullt af Haukafólki