Í dag hélt Golfklúbburinn Keilir sitt annað innanfélagsmót á sumrinu. 78 Keilisfélagar tóku þátt að þessu sinni og er óhætt að segja að veðrið hafi spilað stóran þátt í spilamennsku margra í dag. Leit mjög vel út í morgun og afskaplega gott veður og sáust margir á stuttermabol í fyrsta sinn í sumar. Fljótlega eftir hádegi byrjar að hvessa og rigna svona svakalega, sumir fóru jafnvel í var eins og togarar gera í brælu:) sumir fengu smá haglél á tímabili. Seinnipart dags stytti þó að mestu upp og var veður með ágætum það sem eftir var móts. Síðustu kylfingar að detta inní hamborgara og franskar um ellefuleytið.
Veitt voru verðlaun fyrir fimm efstu sætin í punktakeppni og besta skor í höggleik. Einnig var þetta mót undankeppni fyrir Bikarinn 2014.
Punktakeppni:
1. sæti Ágúst Ársælsson 39 punktar
2. sæti Kristinn Þorsteinsson 38 punktar
3. sæti Hulda Soffía Hermannsdóttir 37 punktar
4. sæti Benedikt Árni Harðarsson 37 punktar
5. sæti Guðmundur Júní Ásgeirsson 36 punktar
Besta skor í höggleik
Ágúst Ársælsson 70 högg
Vinningshafar geta sett sig í samband við skrifstofu Keilis til að nálgast vinninga.
Minnum á næsta innanfélagsmót sem er 25. júní. Skráning á golf.is og í síma 565-3360
Ágúst Ársælsson var í stuði í dag