Þriðja mótið á öldungamótaröðinni var haldið í dag á Hvaleyrarvelli. Þetta mót er einnig viðmiðunarmót hjá Landssambandi eldri kylfinga. 137 voru skráðir í mótið og verður að segjast eins og er, að veðrið var ekkert sérstakt í dag. Töluverður vindur og svo rigndi einnig annað slagið. En keppendur gerðu sitt besta og allt gekk mjög vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Golf.is lenti í einhverjum erfiðleikum í dag og gerði það mótshöldurum erfitt fyrir. Við birtum því úrslit með fyrirvara um villur sem kunnu að leynast eftir vandræði dagsins. Vinningshafar geta vitjað vinninga á skrifstofu Keilis.
Veitt voru verðlaun fyrir eftirfarandi:
Konur punktar
1. Ásta Óskarsdóttir GR 38 punktar
2. Ágústa Arna Grétarsdóttir GO 30 punktar
3. Erla Adolfsdóttir GK 30 punktar
Karlar 69+ punktar
1. Pétur Elíasson GK 39 punktar
2. Jóhann Peter Andersen GK 31 punktar
3. Kristinn Jóhannsson GR 30 punktar
Karlar 50-68
1. Gunnar Páll Þórisson GKG 36 punktar
2. Ómar Örn Ragnarsson GB 34 punktar
3. Guðni Sigurður Ingvarsson GK 33 punktar
Besta skor karlar
Gunnar Páll Þórisson GKG 75 högg
Besta skor kvenna
Ásta Óskarsdóttir GR 86 högg
Nándarverðlaun
4. hola Einar Hafsteinsson GKG 5,09 m
6. hola Christian Emil Þorkelsson GR 1,62 m
10. hola Jóhann Ríkharðsson GO 0,65 cm
16. hola Sæmundur Pálsson GR 1,51 m
Golfklúbburinn Keilir þakkar öllum keppendum og starfsfólki fyrir ánægjulegan dag.