Í dag fór fram opna Ping öldungamótið og var fullt í mótið. 172 kylfingar skráðu sig til leiks og reyndist Hvaleyrin mörgum erfið í vindinum. Golfklúbburinn Keilir þakkar Íslensk-Ameríska umboðsaðila Ping á Íslandi kærlega fyrir veittan stuðning. Ping gefur öll verðlaun í mótinu eins og undanfarin ár. Okkar fólk byrjaði að ræsa út eldsnemma í morgun og var ræst út til 14:30. Mótið tókst vel í alla staði og var ekki annað að sjá en kylfingar hefðu notið dagsins með okkur, þrátt fyrir smá Hvaleyrargust. Golfklúbburinn Keilir vill koma fram þakklæti til allra þeirra sem tóku þátt í mótinu og einnig okkar starfsfólki sem vann við mótið. Verðlaun voru veitt fyrir eftirfarandi og geta vinningshafar vitjað vinninga sína á skrifstofu Keilis.
Konur 49+
1. sæti punktar:               Ásta Óskarsdóttir  37 punktar
2. sæti punktar:               Ásgerður Sverrisdóttir  36 punktar
3. sæti punktar:               Þórdís Geirsdóttir  35 punktar
Konur 65+
1. sæti punktar:               Inga Magnúsdóttir   31 punktar
2. sæti punktar:               Björg Kristinsdóttir  30 punktar
3. sæti punktar:               Margrét Geirsdóttir  28 punktar
Karlar 49+
1. sæti punktar:               Hörður Sigurðsson  37 punktar
2. sæti punktar:               Sigurður Aðalsteinsson  37 punktar
3. sæti punktar:               Ásmundur Karl Ólafsson  37 punktar
Karlar 65+
1. sæti punktar:               Þórhallur Sigurðsson  36 punktar
2. sæti punktar:               Guðjón Þorvaldsson 33 punktar
3. sæti punktar:               Guðmundur Ágúst Guðmundsson  33 punktar
Besta skor karla:             Sigurður Aðalsteinsson  73 högg
Besta skor kvenna:         Þórdís Geirsdóttir  78 högg
Nándarverðlaun
4.Hola    Ásgeir Sigurbjörn Ingvason  1,51 m
6.Hola    Steinunn Sæmundsdóttir  2,19 m
10.Hola  Walter Hjartarsson  0,38 cm
16.Hola  Kristján R. Hansson   0,92 cm