Í dag fór fram Opna Ping Öldungamótið á Hvaleyrarvelli. 133 LEK kylfingar tóku þátt og var þetta mót nr. 2 hjá þeim. Fínar aðstæður og völlurinn heldur betur að taka við sér. Það var Íslensk Ameríska heildverslun og umboðsaðili PING á Íslandi sem gaf öll verðlaun í mótið.
Verðlaun voru veitt fyrir besta skor kvenna og karla og 5. efstu sætin í punktakeppni kvenna og karla. Einnig voru veitt nándarverðlaun á öllum par 3 brautum vallarins. Vinningshafar geta vitjað vinninga á skrifstofu Keilis innan 6 mánaða og óskum við vinningshöfum til hamingju með árangurinn.
Úrslit urðu svo eftirfarandi:
Besta skor kvenna  Þórdís Geirsdóttir GK  82 högg.
Besta skor karla  Frans Páll Sigurðsson GK  73 högg (betri seinni 9).
Punktakeppni kvenna.
1. verðlaun  Halla Sigurgeirsdóttir  GK  37 punktar
2. verðlaun  Kristín Sigurbergsdóttir  GK  35 punktar
3. verðlaun  Guðrún Garðars  GR  35 punktar
4. verðlaun  Baldvina Guðlaug Snælaugsdóttir  GKG  33 punktar
5. verðlaun  Rut Marsibil Héðinsdóttir  GM  33 punktar
Punktakeppni karla.
1. verðlaun  Grímur Þórisson GO  39 punktar.
2. verðlaun  Haraldur Örn Pálsson  GK  38 punktar.
3. verðlaun  Guðmundur Guðmundsson  GSE  GO  38 punktar.
4. verðlaun  Halldór FriðgeirÓlafsson  GR  38 punktar.
5. verðlaun  Gunnar Páll Þórisson  GKG  37 punktar.
Nándarverðlaun.
4. braut  Grímur Þórisson  1.89 m
6. braut  Gunnlaugur Ragnarsson  1.95 m
10. braut Guðjón Grétar Daníelsson  3.15 m
16. braut Jóhannes Jónsson  3.45 m
Vinningaskrá Opna Ping.
Besta skor karla  PING Ferðapoki og derhúfa.
Besta skor kvenna Ping Ferðapoki og derhúfa.
Punktakeppni karla.
1. verðlaun  PING Karsten TR pútter og handklæði.
2. verðlaun  PING Regncover yfir poka og kuldahúfa.
3. verðlaun  PING Regnhlíf og derhúfa.
4. verðlaun  PING skópoki og kuldahúfa.
5. verðlaun  PING tuðra með grínmerki og tíum.
Punktakeppni kvenna
1. verðlaun  PING Karsten TR pútter og handklæði.
2. verðlaun  PING Regncover yfir poka og kuldahúfa.
3. verðlaun  PING Regnhlíf og derhúfa.
4. verðlaun  PING skópoki og kuldahúfa.
5. verðlaun  PING tuðra með grínmerki og tíum.
Nándarverðlaun 4. braut  PING íþróttataska.
Nándarverðlaun 6. braut  PING höldupoki án stands.
Nándarverðlaun 10. braut PING regnhlíf.
Nándarverðalun 16. braut PING skópoki, handklæði og PING golfhanski.
Golfklúbburinn Keilir þakkar Íslensk Ameríska heildverslun kærlega fyrir veittan stuðning.