Braut 9 – Þvottaklettar

2012-03-29T11:31:38+00:0029.03.2012|

Brautin er nokkuð breið en betra er að vera vinstra megin því kletturinn hægra megin getur verið til trafala ef menn ætla inná flöt í tveimur höggum. Tjörnin, með tignarlegum gosbrunninum fyrir framan geysistóra flötina, kemr kylfingum fyrir sjónir sem bæði falleg og ógnvekjandi. Innáhöggið þarf því að vanda vel svo það lendi á góðum stað [...]

Braut 11 – Sandbrekkur

2012-03-29T11:30:54+00:0029.03.2012|

Brautin er í hundslöpp til vinstri og fremur mjó og hallar öll frá hægri til vinstri í átt að vallarmörkunum. Betra er að vera hægra megin í teighögginu en þó ekki of mikið því röffið er erfitt. Fyrir högglengri spilara eru tvær glompur hægra megin brautar ógnandi. Vinstra megin er hættulegt röff með mikið af stórgrýti. [...]

Braut 10 – Sandvík

2012-03-29T11:28:30+00:0029.03.2012|

Miklar breytingar á 10. flötinni hafa gert þessa holu eina af skemmtilegustu og fallegustu holum landsins. Flötin, sem er gríðarlega stór, er vel varin af djúpum glompum fyrir framan og hægra megin við flötina. Að auki eru vallarmörkin sem fyrr til vinstri. Ef leikmaður hittir flötina þá er eftirleikurinn langt frá því að vera auðveldur., því [...]

Braut 8 – Selstígur

2012-03-29T11:21:43+00:0029.03.2012|

Á áttundi holunni í "Hrauninu" leynast hætturnar fyrst og fremst í kringum flötina og flötin sjálf er ein sú erfiðasta á vellinum. Brautin er nokkuð breið og beggja megin hennar er röffkantur sem stöðvar bolta sem eru á leið í hraunið. Gott er að halda sig hægra megin í teighögginu því innáhöggið er oft þægilegra þaðan. [...]

Go to Top