Skýrsla íþróttastjóra

Hjá Golfklúbbnum Keili fer fram öflugt íþróttastarf þar sem að allir geta fundið æfingar og þjálfun við sitt hæfi.

Golfklúbburinn Keilir er fyrirmyndarfélag ÍSÍ frá árinu 2017. Það er gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar sem snýr að íþróttastarfi. Verkefnið gildir í 4 ár og er núna verið að vinna að því að endurnýja viðurkenninguna. Viðurkenningin er fyrir alla starfsemi klúbbsins, fyrir unga sem aldna en en ekki bara barna- og unglingastarfið.

Auk þess voru gerðar siðareglur Keilis. Þær eiga að veita öllum félagsmönnum, starfsmönnum, þjálfurum, foreldrum og öllum þeim sem koma að starfinu almennar leiðbeiningar bæði í leik og starfi.

Einnig er unnið eftir jafnréttisáætlun og forvarnarstefnu hafa öll þessi gögn fengið samþykki í tengslum við fyrirmyndarfélag ÍSÍ.

Einnig er nýlega kominn út samræmd viðbraðgsáætlun fyrir íþrótta- og æskulýðstarf. Viðbragðsáætlunin veitir íþrótta- og æskulýðsfélögum samræmdar leiðbeiningar þegar erfið og flókin mál af ýmsum toga koma upp. Viðbragðsáætlunin er einföld og á við í öllum tilvikum, óháð því um hvaða aðila og atvik er um að ræða.

Dæmi um atvik sem að viðbragðsáætlunin nær til eru slys, veikindi, náttúruhamfarir, einelti og ofbeldi. Einnig eru þar gagnlegar upplýsingar um meðal annars ferðalög, hinseginleika og fjölmenningu og inngildingu í félagsstarfi, öryggismál og skráningu atvika.

Golfklúbburinn Keilir vinnur eftir leiðarvísi fyrir golfklúbba sem gefin var út af Golfsambandi Íslands árið 2017 sem fjallar um skipulag, kennslu og þjálfun barna og unglinga. Leiðarvísirinn hefur þann tilgang að móta stefnu og leggja grunninn að uppbyggingu.

Það er einnig unnið eftir íþróttanámskrá Keilis sem var gefin út fyrir nokkrum árum. Hann er mikilvægur fyrir alla til að fá heildarsýn yfir það barna- og unglingastarf sem fram fer í golfklúbbnum.

Til umhugsunar fyrir öflugt starf

Mikilvægast af öllu er að fyrstu kynni af golfíþróttinni séu jákvæð og að börnum og unglingum líði vel og þau finni að þau séu velkomin til okkar.

Golfiðkun skal vera þroskandi líkamlega, félagslega og sálrænt. Með því móti skapast aðstæður fyrir mun fleiri börn og unglinga að njóta sín og æfa golf hjá Keili.

Faglega er staðið að þjálfun barna og ungmenna og er starfið öflugt. Það er nú þegar farið að skila mjög góðum árangri þar sem við eigum marga af efnilegustu kylfingum landsins í flokki 10 ára og yngri, 12 ára og yngri og í flokkum 16 ára og yngri.

Framtíðin er björt hjá Keili í golfstarfinu. Efniviðurinn er mikill og þar þarf að vanda til verka. Það er búið að leggja mikla rækt við uppbyggingu og þjálfun á undanförnum árum enda hefur fjölgað jafnt og þétt ár frá ári.

Stór hluti af þeim verður vonandi hryggjarstykkið í keppnis og afreksmannahópum okkar í framtíðinni.

Það er ansi mikið þolinmæðisverk, er krefjandi og mikil vinna sem í því felst að byggja upp kylfinga í byrjun og halda þeim við efnið.

Í íþróttastarfi Keilis getur þú æft eins og þér hentar, þú skiptir máli. Allir fá gefin jöfn tækifæri til að stunda golf óháð því hvort einstaklingurinn vilji keppa eða ekki, viljir verða afreksmaður eða ekki.

Krakkar frá 5 ára geta byrjað að æfa golf undir leiðsögn góðra þjálfara hjá Keili sem eru með mikla og góða reynslu á öllum sviðum golfíþróttarinnar.

Við erum eini golfklúbburinn sem býður upp á golfkennslu fyrir elstu deildir leikskóla.

Að vera félagi

Öll börn og unglingar sem vilja stunda íþróttir til þess að svala félagsþörf sinni fá að stunda golf við sitt hæfi.

Ef viðkomandi finnur sig í félagskapnum er það stórkostlegt og takmarkinu náð í því að vilja verða kylfingur til æviloka. Miklu minni líkur á því að viðkomandi hverfi á braut og hætti iðkun.

Breiddin og bilið á milli kylfingana getur verið mikil. Samt er pláss fyrir alla aðila að æfa golf. Suma aðila langar að mæta 1-2x á æfingar í viku og upp í það að viðkomandi vill eiga heima á golfvellinum í hvaða veðri sem er.

Viðkomandi er kannski að æfa golf vegna þess þegar heim er komið fær hann að vera í tölvunni í klst. eða að einstaklingurinn á sér þann draum að komast í landslið Íslands í golfi og kannski síðar meir eitthvað meira.

Við gerum okkur grein fyrir því að við eignumst ekki afreksmenn nema hafa alla hina krakkana til að æfa og veita þeim félagsskap.

Það er svo frábært að sjá einstakling sem að bætir sig og finnst gaman og fátt sem er meira gefandi fyrir þjálfara. Það er ánægjulegt að fylgjast með hvernig viðkomandi blómstar bæði innan vallar sem utan hans.

Að lokum

Eitt af markmiðum okkar er að koma til móts við þarfir allra félagsmanna Keilis.

Í dag er Keilir  með eitt stærsta barna- og ungmennastarfið þeirra aðila sem eru að æfa golf í lágmark 4 mánuði á hverju ári og með æfingar lágmark 2x í viku.

Samkvæmt Sportabler hjá Keili eru 160 einstaklingar 18 ára og yngri sem eru að æfa íþróttina. Á næsta ári verður hægt að  fjölga golfþjálfurum/leiðbeinendum og hlúa enn betur að starfinu því nægur er efniviðurinn. Mikilvægt er að áskoranir séu fyrir alla aðila í starfinu og er í samræmi við færni. Þá læra kylfingar best.

Gildi og mikilvægi íþróttaiðkunar hefur mikið forvarnargildi og er það ekki metið til fjár.

Allt íþróttastarfið á að vera gagnrýnið, uppbyggilegt og umfram allt gagnlegt fyrir alla aðila sem að starfinu koma. Við viljum alltaf gera betur og að öllum líði vel í starfinu hjá okkur.

Að lokum vil ég þakka öllum þeim aðilum sem að komu að íþróttastarfinu okkar á árinu 2022, börnum, ungmennum og foreldrum, þjálfurum,  velunnurum og styrktaraðilum og öllu starfsfólki Keilis.

Áfram Keilir

Karl Ómar Karlsson íþróttastjóri Keilis.